Unnið er að því hvernig best sé að standa að nútímavæðingu fasteignaskrár og tekur það einkum á landfræðilegri afmörkun fasteigna (lands og mannvirkja) og staðsetningu staðfanga.

Landeignaskrá

Allar lóðir og jarðir á Íslandi verða landfræðilega afmarkaðar í miðlægri fasteignaskrá Þjóðskrár Íslands en viðhaldið af sveitarfélögum og öðrum samþykktum skráningaraðilum. Í landeignaskrá verður jafnframt haldið utan um mæliupplýsingar, lóðablöð og fleira er við kemur hnitsetningu og uppmælingu landamerkja.
Sjá nánar stefnumörkun innanríkisráðuneytis í málefnum landeignaskrár.

Mannvirkjaskrá

Þjóðskrá Íslands mun leitast við að hnitsetja alla mannvirkjahluta sem skráðir eru í fasteignaskrá. Afmörkun mannvirkja byggist á því að hnitsetja grunnflöt mannvirkis, þar sem hann sker yfirborð jarðar.

Staðfangaskrá

Þjóðskrá Íslands mun í samstarfi við aðrar ríkisstofnanir og aðra hlutaðeigandi aðila, hanna og viðhalda staðfangaskrá. Að samræma skráningu staðfanga á Íslandi felur í sér að tryggja einkvæmni upplýsinga, minnka kostnað hins opinbera við viðhald slíkrar skrár og auka gæði gagna. Hnitsetning staðfangs er almennt miðað við aðgengi inn á lóð eða byggingu.

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English