Þjóðskrá04. mars 2015

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í febrúar 2015

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í febrúar 2015 var 436. Heildarvelta nam 15,7 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 36,1 milljón króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 10,1 milljarði, viðskipti með eignir í sérbýli 4,3 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 1,3 milljörðum króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í febrúar 2015 var 436. Heildarvelta nam 15,7 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 36,1 milljón króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 10,1 milljarði, viðskipti með eignir í sérbýli 4,3 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 1,3 milljörðum króna.

Þegar febrúar 2015 er borinn saman við janúar 2015 fækkar kaupsamningum um 8,2% og velta minnkar um 19,9%. Í janúar 2015 var 475 kaupsamningum þinglýst, velta nam 19,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 41,4 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 7 í febrúar 2015 eða 1,7% af öllum samningum. Í janúar 2015 voru makaskiptasamningar 27 eða 6,5% af öllum samningum. Í febrúar 2014 voru makaskiptasamningar 15 eða 3,5% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Þegar febrúar 2015 er borinn saman við febrúar 2014 fækkar kaupsamningum um 5,8% og velta minnkar um 3%. Í febrúar 2014 var 463 kaupsamningum þinglýst, velta nam 16,2 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 35 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Tafla 1. Samanburður á janúar 2015 og febrúar 2015

Janúar 2015

Febrúar 2015

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

12.649

355

10.146

323

-19,8%

-9,0%

Sérbýli

4.122

73

4.294

90

4,2%

23,3%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

2.871

47

1.286

23

-55,2%

-51,1%

Samtals

19.642

475

15.725

436

-19,9%

-8,2%

 

 

Tafla 2. Samanburður á febrúar 2014 og febrúar 2015

Febrúar 2014

Febrúar 2015

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

10.269

349

10.146

323

-1,2%

-7,4%

Sérbýli

4.179

85

4.294

90

2,8%

5,9%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

1.771

29

1.286

23

-27,4%

-20,7%

Samtals

16.219

463

15.725

436

-3,0%

-5,8%

 
Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)
 
Febrúar 2014
Janúar 2015
Febrúar 2015
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
434
414
413
-4,8%
-0,2%
Makaskipti eða lausafé
15
29
8
-46,7%
-72,4%
Makaskipti
15
27
7
-53,3%
-74,1%
Lausafé
0
2
1
-
-
Hlutfall makaskipta
3,5%
6,5%
1,7%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar