Þjóðskrá26. maí 2015

Velta á markaði 15.maí - 21.maí 2015

Vegna verkfalls lögfræðinga hjá Sýslumannsembættinu á höfuðborgarsvæðinu var engum kaupsamningum þinglýst á tímabilinu 15. maí til og með 21. maí 2015.

Vegna verkfalls lögfræðinga hjá Sýslumannsembættinu á höfuðborgarsvæðinu var engum kaupsamningum þinglýst á tímabilinu 15. maí til og með 21. maí 2015.

Á sama tíma var 17 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum*. Þar af voru 6 samningar um eignir í fjölbýli, 10 samningar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 376 milljónir króna og meðalupphæð á samning 22,1 milljón króna.

Á sama tíma var 16 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 13 samningar um eignir í fjölbýli og 3 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 436 milljónir króna og meðalupphæð á samning 27,2 milljónir króna.

Á sama tíma var 18 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu**. Þar af voru 3 samningar um eignir í fjölbýli, 12 samningar um sérbýli og 3 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 383 milljónir króna og meðalupphæð á samning 21,3 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Velta á markaði vikuna 15. maí til og með 21. maí
Svæði Samtals Fjölbýli Sérbýli Aðrar eignir Meðaltal sl.
12 vikna
Höfuðborgarsvæðið
Reykjavík 0 0 0 0 34
Seltjarnarnes 0 0 0 0 2
Mosfellsbær 0 0 0 0 3
Kópavogur 0 0 0 0 15
Hafnarfjörður 0 0 0 0 7
Garðabær 0 0 0 0 5
Samtals 0 0 0 0 67
Velta (millj. kr.) 0 2.604
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 0 39,2
Suðurnes 17 6 10 1 15
Velta (millj. kr.) 376 313
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 22,1 21
Akureyri 16 13 3 0 14
Velta (millj. kr.) 436 406
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 27,2 29
Árborgarsvæðið 18 3 12 3 10
Velta (millj. kr.) 383 196
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 21,3 19,9

 

* Sveitarfélögin Reykjanesbær, Grindavík, Sandgerði, Garður og Vogar.
** Sveitarfélögin Árborg, Hveragerði og Ölfus.

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar