Þjóðskrá02. september 2015

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í ágúst 2015

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í ágúst 2015 var 780. Heildarvelta nam 29 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 37,1 milljón króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 18,6 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 8 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 2,3 milljörðum króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í ágúst 2015 var 780. Heildarvelta nam 29 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 37,1 milljón króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 18,6 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 8 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 2,3 milljörðum króna.

Makaskiptasamningar voru 13 í ágúst 2015 eða 1,8% af öllum samningum. Í júlí 2015 voru makaskiptasamningar 42 eða 3% af öllum samningum. Í ágúst 2014 voru makaskiptasamningar 11 eða 2,3% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Þegar ágúst 2015 er borinn saman við júlí 2015 fækkar kaupsamningum um 46,2% og velta minnkar um 46,1%. Í júlí 2015 var 1451 kaupsamningi þinglýst, velta nam 53,8 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 37,1 milljón króna.

Þegar ágúst 2015 er borinn saman við ágúst 2014 fjölgar kaupsamningum um 56,6% og velta eykst um 64,6%. Í ágúst 2014 var 498 kaupsamningum þinglýst, velta nam 17,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 35,3 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Tafla 1. Samanburður á júlí 2015 og ágúst 2015

Júlí 2015

Ágúst 2015

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

35.590

1099

18.641

594

-47,6%

-46,0%

Sérbýli

15.372

295

8.000

148

-48,0%

-49,8%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

2.813

57

2.318

38

-17,6%

-33,3%

Samtals

53.775

1451

28.959

780

-46,1%

-46,2%

 

 

Tafla 2. Samanburður á ágúst 2014 og ágúst 2015

Ágúst 2014

Ágúst 2015

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

11.327

374

18.641

594

64,6%

58,8%

Sérbýli

4.998

101

8.000

148

60,1%

46,5%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

1.267

23

2.318

38

83,0%

65,2%

Samtals

17.592

498

28.959

780

64,6%

56,6%

 

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)
 
Ágúst 2014
Júlí 2015
Ágúst 2015
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
475
1394
742
56,2%
-46,8%
Makaskipti eða lausafé
13
43
16
23,1%
-62,8%
Makaskipti
11
42
13
18,2%
-69%
Lausafé
2
1
3
-
-
Hlutfall makaskipta
2,3%
3%
1,8%
-
-

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar