Þjóðskrá24. nóvember 2015

Viðskipti með atvinnuhúsnæði í október 2015

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Í október 2015 var 113 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 3.709 milljónir króna. Af þessum skjölum voru 33 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði.

Á sama tíma var 56 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 1.439 milljónir króna.

Á sama tíma voru 77 kaupsamningar um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 2.046 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 1.660 milljónir króna. Af þessum samningum voru 17 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

Á sama tíma var 21 kaupsamningur um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins skráður í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 354 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 426 milljónir króna.

Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum, auk nánari sundurgreiningar.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar