Þjóðskrá20. júlí 2016

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í júní 2016

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 150 stig í júní 2016 (janúar 2011=100) og lækkar um 1,6% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 1,6% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 5,4%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 150 stig í júní 2016 (janúar 2011=100) og lækkar um 1,6% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 1,6% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 5,4%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í júní 2016.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 658 samningar, sem þinglýst var í júní 2016. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í júní 2016 eru því unnar upp úr 446 leigusamningum sem þinglýst var í júní 2016.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í júní 2016 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Svæði

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

4395

2567

2176

1818

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

2483

2369

1976

2475

Kópavogur

-

2396

1932

1628

Garðabær og Hafnarfjörður

-

2022

1904

1792

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

-

2090

1873

1725

Breiðholt

2437

2207

1847

1837

Kjalarnes og Mosfellsbær

-

2708

-

-

Suðurnes

-

1438

1484

1207

Vesturland

-

1341

1359

1121

Vestfirðir

-

-

-

542

Norðurland nema Akureyri

-

-

-

1082

Akureyri

-

1994

1735

1442

Austurland

-

-

-

1063

Suðurland

-

1364

1247

971

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar