Þjóðskrá25. nóvember 2014

Viðskipti með atvinnuhúsnæði í október 2014

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Í október 2014 var 70 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 2.544 milljónir króna. Af þessum skjölum voru 23 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði.

Á sama tíma var 47 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 1.262 milljónir króna.

Á sama tíma voru 44 kaupsamningar um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 1.934 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 1.080 milljónir króna. Af þessum samningum voru 13 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

Á sama tíma voru 27 kaupsamningar um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 489 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 325 milljónir króna.

Athygli er vakin á því að fasteignamat þinglýstra skjala hefur verið uppfært, það var vanmetið áður. 

Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum, auk nánari sundurgreiningar.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar