Aðgangur að gögnum

Fyrirtækjum og stofnunum stendur til boða að nota upplýsingar úr skrám þjóðskrár vegna starfsemi sinnar.

Þjóðskrá Íslands miðlar þjóðskránni ekki beint frá sér til viðskiptavina heldur sjá miðlarar um tengingu til viðskiptavina. Hægt er að fá upplýsingar úr þjóðskrá með heildarskrá eða í gegnum uppfletti.

Fyrir aðgang að upplýsingum úr þjóðskrá þarf að senda inn umsókn til okkar. Við mælum alltaf með því að heyra fyrst í einum af okkar miðlurum til að fá upplýsingar um hvaða möguleikar henta best allt eftir því hvernig nota eigi gögnin úr þjóðskrá.

Gjaldskrá Þjóðskrár

Skoða gjaldskrá

Skilgreiningar á svæðum í þjóðskrá

Þjóðskrá skiptist í þrjár skrár. Mismunandi tegundir eru að aðgangi sem sækja þarf sérstaklega um og inniheldur hver aðgangur mismikið af upplýsingum.

Sjá skilgreiningar

Táknmál Þjóðskrár (lýsing)

Skoða táknmál