Fasteignir04. mars 2021

Nýjar upplýsingar um fjölda íbúða birtar í Fasteignagátt Þjóðskrár

Yfirlit yfir fjölda íbúða, bæði fullbúnar og ófullbúnar birtast nú í Fasteignagátt Þjóðskrár en birtingin er sjálfvirkt uppfærð á hverjum morgni.

Nýjar upplýsingar um fjölda íbúða eru nú birtar í Fasteignagátt Þjóðskrár

Þar má finna yfirlit yfir fjölda fullbúinna og ófullbúinna íbúða hverju sinni eftir landshlutum, sveitarfélögum og tegundum íbúða.

Gögnin eru uppfærð með sjálfvirkum hætti á hverjum degi og því má alltaf ganga að því vísu að um sé að ræða nýjustu upplýsingar hverju sinni.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar