Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um fjölda erlendra ríkisborgara sem eru með skráða búsetu hér á landi eftir sveitarfélögum. Tölurnar miðast við 1. desember 2025.
Hlutfall erlendra ríkisborgara er afar breytilegt milli sveitarfélaga eða frá rúmum 67,4% niður í 5,8% þó að jafnaði er hlutfallið um 20,4% þegar horft er til allra sveitarfélaga.
Hæsta hlutfall erlendra ríkisborgara eru í Mýrdalshreppi. Alls eru 67,4% íbúa hreppsins með erlent ríkisfang, 760 erlendir ríkisborgarar af alls 1.128 íbúum hreppsins. Næst hæsta hlutfall erlendra ríkisborgara er í Skaftárhreppi með 46,2% og Bláskógabyggð með 39,1% íbúa.
Sveitarfélög með hæsta hlutfall erlendra ríkisborgara
Lægsta hlutfall erlendra ríkisborgara eru í Sveitarfélaginu Skagaströnd. Alls eru 5,8% íbúa hreppsins með erlent ríkisfang, 27 erlendir ríkisborgarar af alls 466 íbúum hreppsins. Næst lægsta hlutfall erlendra ríkisborgara er í Hörgársveit með 6,4% og Eyjafjarðarsveit með 7,1% íbúa.
Sveitarfélög með lægsta hlutfall erlendra ríkisborgara
Þegar horft er til landshluta þá er hæsta hlutfall íbúa með erlent ríkisfang á Suðurnesjum, 29,7% íbúa og Vestfirðir koma næst með 24% íbúa. Lægsta hlutfall íbúa með erlent ríkisfang er á Norðurlandi eystra, 11,5%.
Hér má sjá töflu yfir fjölda erlendra ríkisborgara eftir sveitarfélögum þann 1. desember 2025.
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi eftir ríkisfangi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.