Þjóðskrá24. febrúar 2015

Viðskipti með atvinnuhúsnæði í janúar 2015

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Í janúar 2015 var 89 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 7.236 milljónir króna. Af þessum skjölum voru 37 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði.

Á sama tíma var 49 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 790 milljónir króna.

Á sama tíma voru 42 kaupsamningar um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 2.607 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 2.589 milljónir króna. Af þessum samningum voru 17 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

Á sama tíma voru 18 kaupsamningar um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 536 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 296 milljónir króna.

Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum, auk nánari sundurgreiningar.

Athugið að villa fannst í kóðanum og hafa tölur verið uppfærðar aftur í tímann.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar