Þjóðskrá06. maí 2015

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í apríl 2015

Vegna verkfalls lögfræðinga hjá sýslumannsembættinu á höfuðborgarsvæðinu var engum kaupsamningum þinglýst á tímabilinu 6. apríl til og með 30.apríl 2015.

Vegna verkfalls lögfræðinga hjá sýslumannsembættinu á höfuðborgarsvæðinu var engum kaupsamningum þinglýst á tímabilinu 6. apríl til og með 30.apríl 2015. 

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í apríl 2015 var 69. Heildarvelta nam 2,5 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 36,4 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 1,7 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 0,5 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 0,2 milljörðum króna. 

Þegar apríl 2015 er borinn saman við mars 2015 fækkar kaupsamningum um 90,3% og velta minnkar um 90,9%. Í mars 2015 var 713 kaupsamningum þinglýst, velta nam 27,7 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 38,8 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 5 í apríl 2015 eða 7,5% af öllum samningum. Í mars 2015 voru makaskiptasamningar 29 eða 4,3% af öllum samningum. Í apríl 2014 voru makaskiptasamningar 7 eða 1,4% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Þegar apríl 2015 er borinn saman við apríl 2014 fækkar kaupsamningum um 86,9% og velta minnkar um 85,9%. Í apríl 2014 var 527 kaupsamningum þinglýst, velta nam 17,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 33,9 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Tafla 1. Samanburður á mars 2015 og apríl 2015

Mars 2015

Apríl 2015

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

17.832

525

1.742

55

-90,2%

-89,5%

Sérbýli

7.547

144

550

12

-92,7%

-91,7%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

2.290

44

222

2

-90,3%

-95,5%

Samtals

27.669

713

2.514

69

-90,9%

-90,3%

 

 

Tafla 2. Samanburður á apríl 2014 og apríl 2015

Apríl 2014

Apríl 2015

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

12.177

407

1.742

55

-85,7%

-86,5%

Sérbýli

4.458

89

550

12

-87,7%

-86,5%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

1.227

31

222

2

-81,9%

-93,5%

Samtals

17.862

527

2.514

69

-85,9%

-86,9%

 
Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)
 
Apríl 2014
Mars 2015
Apríl 2015
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
496
669
67
-86,5%
-90,0%
Makaskipti eða lausafé
7
32
5
-28,6%
-84,4%
Makaskipti
7
29
5
-28,6%
-82,8%
Lausafé
0
3
0
-
-
Hlutfall makaskipta
1,4%
4,3%
7,5%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar