Lágmarksframfærsluskilyrði

EES eða EFTA ríkisborgarar sem hyggjast sækja um lögheimilisskráningu á Íslandi þurfa að sýna fram á framfærslugetu í a.m.k. þrjá mánuði frá skráningardegi. Athugið að reiðufé telst ekki fullnægjandi staðfesting á framfærslu. Framfærsluupphæðin miðast við upphæð fjárhagsaðstoðar Reykjavíkurborgar.

Hér má sjá lágmarksframfærsluupphæð eftir flokkum:

    • Mánaðarleg lágmarksframfærsla er 239.895 kr.
    • Þriggja mánaða lágmarksframfærsla er því 719.685 kr.
    Launþegar þurfa að sýna fram á að þeir hafi a.m.k. 239.895 kr. í laun á mánuði í a.m.k. þrjá mánuði. Einstaklingar sem koma á eigin framfærslu þurfa að sýna að þeir eigi a.m.k. 719.685 kr. til að framfleyta sér.
    • Samanlögð mánaðarleg lágmarksframfærsla er 383.832 kr.
    • Þriggja mánaða lágmarksframfærsla er því 1.151.496 kr.

    Séu hjón launþegar, bæði eða annað þeirra, þá þurfa þau að vera með a.m.k. 383.832 kr. í samanlögð mánaðarlaun í a.m.k. þrjá mánuði. Hjón sem koma hingað til lands á eigin framfærslu þurfa að sýna að þau eigi samanlagt a.m.k. 1.151.496 kr. til að framfleyta sér.

    • Mánaðarleg lágmarksframfærsla er 119.948 kr.
    • Þriggja mánaða lágmarksframfærsla er því 359.844 kr.

    Sé einstaklingurinn alveg á framfæri foreldra sinna þá bætist fyrrgreind upphæð við framfærsluupphæð foreldranna. Framfærsluviðmið hækkar ekki sé um að ræða börn yngri en 18 ára.

  • Sé um að ræða einstakling sem er eldri er 21 árs sem mun dvelja hjá ættingja sínum (einstaklingi) og vera á framfæri hans, þá er...

    • Mánaðarleg lágmarksframfærsla ættingjans 442.018 kr.
    • Þriggja mánaða lágmarksframfærslan er því 1.326.054 kr.

    Sé um að ræða einstakling sem er eldri er 21 árs sem mun dvelja hjá ættingjum sínum (hjón) og vera á framfæri þeirra, þá er...

    • Mánaðarleg lágmarksframfærsla hjónanna 585.955 kr.
    • Þriggja mánaða lágmarksframfærslan er því 1.757.865 kr.

Upphæðir fjárhagsaðstoðar Reykjavíkurborgar

Skilyrði um framfærsluviðmið taka mið af fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar. 

Fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar