Íbúakosning í Árneshreppi og Kaldrananeshreppi
Hver er minn kjörstaður? Hér geta kjósendur kannað hvort og hvar þeir eru á kjörskrá í íbúakosningu í Árneshreppi og Kaldrananeshreppi sem hefst þann 14. mars og lýkur 28. mars 2026.
Aldursviðmið þessara kosninga er 16 ár.
Þegar slegin er inn kennitala kemur upp nafn ásamt kjörstaður og kjördeild hafi þær upplýsingar verið skráðar af sveitarfélaginu. Athugasemdir varðandi kjörskrá má senda á kosningar@skra.is
Kjósendur eru á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem þeir eiga skráð lögheimili á viðmiðunardegi þann 20. febrúar 2026.
Skrifaðu kennitöluna þína í reitinn hér fyrir neðan til að sjá hvar þú átt að kjósa:
Vinsamlegast sláðu inn kennitölu.
Hver hefur kosningarétt í sveitarstjórnarkosningum?
- Íslenskir ríkisborgarar sem hafa náð 18 ára aldri á kjördag og eiga lögheimili í sveitarfélaginu.
- Norrænir ríkisborgarar (frá Danmörku, Finnlandi, Noregi eða Svíþjóð) sem hafa náð 18 ára aldri á kjördag og eiga lögheimili í sveitarfélaginu.
- Erlendir ríkisborgarar sem hafa átt samfellda búsetu á Íslandi í að minnsta kosti 3 ár fyrir lok kjörfundar og eiga lögheimili í sveitarfélaginu.
Námsmenn á Norðurlöndum geta sótt um að vera teknir á kjörskrá í sveitarstjórnarkosningum
- Umsókn verður að berast Þjóðskrá í síðasta lagi 40 dögum fyrir kjördag
Kjósandi þarf að vera skráður með lögheimili í sveitarfélaginu fyrir kl. 12 á hádegi, 38 dögum fyrir kjördag, samkvæmt Þjóðskrá.
Frekari upplýsingar um kosningarétt