Sveitarstjórnarkosningar 2026
Uppflettingin verður aðgengileg þann 10. apríl 2026 þegar kjörskrár sveitarfélaga eru tilbúnar til birtingar
Hver er minn kjörstaður? Hér geta kjósendur kannað hvort og hvar þeir eru á kjörskrá í sveitarstjórnarkosningum sem verða haldnar þann 16. maí 2026.
Þegar slegin er inn kennitala kemur upp nafn og lögheimili kjósanda ásamt sveitarfélagi. Þá birtast einnig upplýsingar um kjörstað og kjördeild.Kjósendur eru á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem þeir eiga skráð lögheimili á viðmiðunardegi þann 8. apríl 2026.
Ertu með spurningar varðandi skráningu þína á kjörskrá? Hér getur þú fundið gagnlegar upplýsingar.
Athugasemdir varðandi kjörskrá má senda á kosningar@skra.is
Hver hefur kosningarétt í sveitarstjórnarkosningum?
- Íslenskir ríkisborgarar sem hafa náð 18 ára aldri á kjördag og eiga lögheimili í sveitarfélaginu.
- Norrænir ríkisborgarar (frá Danmörku, Finnlandi, Noregi eða Svíþjóð) sem hafa náð 18 ára aldri á kjördag og eiga lögheimili í sveitarfélaginu.
- Erlendir ríkisborgarar sem hafa átt samfellda búsetu á Íslandi í að minnsta kosti 3 ár fyrir lok kjörfundar og eiga lögheimili í sveitarfélaginu.
Námsmenn á Norðurlöndum geta sótt um að vera teknir á kjörskrá í sveitarstjórnarkosningum
- Umsókn verður að berast Þjóðskrá í síðasta lagi 40 dögum fyrir kjördag
Kjósandi þarf að vera skráður með lögheimili í sveitarfélaginu fyrir kl. 12 á hádegi, 38 dögum fyrir kjördag, samkvæmt Þjóðskrá.
Frekari upplýsingar um kosningarétt