Sveitarstjórnarkosningar 2026
Hver er minn kjörstaður?
Hér geta kjósendur kannað hvort og hvar þeir eru á kjörskrá í sveitarstjórnarkosningum sem verða haldnar þann 16. maí 2026.
Þegar slegin er inn kennitala kemur upp nafn og lögheimili kjósanda ásamt sveitarfélagi. Þá birtast einnig upplýsingar um kjörstað og kjördeild.
Kjósendur eru á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem þeir eiga skráð lögheimili á viðmiðunardegi þann 8. apríl 2026.
Athugasemdir varðandi kjörskrá má senda á kosningar@skra.is
Skrifaðu kennitöluna þína í reitinn hér fyrir neðan til að sjá hvar þú átt að kjósa:
Vinsamlegast sláðu inn kennitölu.
Hver hefur kosningarétt í sveitarstjórnarkosningum?
- Íslenskir ríkisborgarar sem hafa náð 18 ára aldri á kjördag og eiga lögheimili í sveitarfélaginu.
- Norrænir ríkisborgarar (frá Danmörku, Finnlandi, Noregi eða Svíþjóð) sem hafa náð 18 ára aldri á kjördag og eiga lögheimili í sveitarfélaginu.
- Erlendir ríkisborgarar sem hafa átt samfellda búsetu á Íslandi í að minnsta kosti 3 ár fyrir lok kjörfundar og eiga lögheimili í sveitarfélaginu.
Námsmenn á Norðurlöndum geta sótt um að vera teknir á kjörskrá í sveitarstjórnarkosningum
- Umsókn verður að berast Þjóðskrá í síðasta lagi 40 dögum fyrir kjördag
Kjósandi þarf að vera skráður með lögheimili í sveitarfélaginu fyrir kl. 12 á hádegi, 38 dögum fyrir kjördag, samkvæmt Þjóðskrá.
Frekari upplýsingar um kosningarétt