Spurt og svarað varðandi kosningarétt í Grindavík

Hér má finna algengar spurningar og svör er varða kosningarétt fyrrum íbúa Grindavíkur sem vilja vera á kjörskrá í Grindavík í sveitarstjórnarkosningum 2026.

Með bráðabirgðaákvæði í lögum um kosningar 112/2021 er þeim sem höfðu lögheimili í Grindavik 9. nóvember 2023 en hafa síðar flutt lögheimilið til annars sveitarfélags veitt tækifæri til þess að kjósa í Grindavík í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí 2026.

 

Skilyrði fyrir að sækja um að vera á kjörskrá í Grindavík

  • Lögheimili á Íslandi við umsókn og í öðru sveitarfélagi en Grindavík
  • Lögheimili þarf að hafa verið í Grindavík (2300) þann 9.11.2023
  • Íslenskir og norrænir ríkisborgarar - 18 ára og eldri á kjördag
  • Aðrir erlendir ríkisborgarar sem hafa samfellda 3 ára búsetu á Íslandi á kjördag

Frekari upplýsingar um kosningarétt