Copy of Námsmenn-ísl
Þú getur verið búsettur á Íslandi á grundvelli þess að vera námsmaður ef
- Þú ert ríkisborgari EES/EFTA ríkis.
- Ert innritaður í viðurkennda námsstofnun.
EES og EFTA ríkisborgarar sem hyggjast dvelja á Íslandi á grundvelli náms skulu:
- Skrá lögheimili sitt á Íslandi eigi síðar en þremur mánuðum eftir komu til landsins.
- Vera innritaðir í viðurkennda námsstofnun með það að meginmarkmiði að öðlast þar menntun eða starfsþjálfun.
- Hafa nægilegt fé til að framfleyta sér og fjölskyldumeðlimum sem fylgja þeim til landsins.
Þú þarft að hafa einkasjúkratryggingu sem tryggir alla áhættu þar til þú hefur haft lögheimili á Íslandi í 6 mánuði. Sex mánaða lögheimilisskráning á Íslandi er forsenda þess að njóta sjúkratryggingar almannatrygginga.
Það er á ábyrgð hvers og eins að þekkja skilmála sinnar tryggingar og tryggingafélags og að hún sé fullnægjandi og gild á Íslandi.
Ríkisborgari EES/EFTA ríkis sem stundar nám á Íslandi en ekki atvinnu, kann að eiga rétt til þess að fá útgefið S1 sjúkratryggingavottorð frá sínu heimalandi. Til þess að kanna hvort þú eigir rétt á slíku vottorði er bent á að hafa samband við viðkomandi sjúkratryggingastofnun þess lands.
Eigir þú rétt á S1 vottorði, þarf að afhenda það Þjóðskrá Íslands. Það þarf einnig að berast Sjúkratryggingum Íslands, en Þjóðskrá Íslands getur framsent vottorðið sé þess óskað.
Ath. Misnotkun eða svik geta leitt til þess að dvalarréttur einstaklings verði afturkallaður.
EES og EFTA ríkisborgurum sem dvelja á Íslandi á grundvelli náms er heimilt að vinna á meðan námi stendur.
Maki og börn geta fylgt námsmanni til Íslands og þurfa jafnframt að skrá sig hjá Þjóðskrá Íslands innan þriggja mánaða frá komu til landsins.
EES/EFTA borgarar sem dvelja á Íslandi í 5 ár, geta átt rétt á ótímabundnum dvalarrétti ef þeir uppfylla skilyrði.
Ef þú hyggst dvelja hér á landi skemur en 3 mánuði þá uppfyllir þú ekki skilyrði til lögheimilisskráningar og getur sótt um kerfiskennitölu, sjá nánar hér.
Ef þú hyggst dvelja hér á landi lengur en 3 mánuði þarftu að sækja um lögheimilisskráningu á Íslandi. Þá hefur þú rétt til að dvelja á Íslandi svo lengi sem þú uppfyllir skilyrði til lögheimilisskráningar.
Ef þú fékkst lögheimilisskráningu á grundvelli náms og ert hættur í námi, þá getur þú dvalið á Íslandi meðan þú uppfyllir skilyrði til lögheimilisskráningar, eins og t.d. sem :
- Launþegi
- Sjálfstætt starfandi
- Á eigin framfærslu
- Fjölskyldumeðlimur
- Starfsmaður erlends fyrirtækis
Ef þú ert að fara úr landi vegna þess að þú getur ekki framfleytt þér lengur og uppfyllir þar af leiðandi ekki lengur skilyrði til lögheimilisskráningar, þarf að tilkynna flutning úr landi hér.
Einstaklingum er heimilt að fara erlendis í allt að 6 mánuði án þess að skrá lögheimili sitt úr landi.
Ekki þarf að skrá sig úr landi vegna dvalar erlendis lengur en 6 mánuði ef eitthvert eftirfarandi skilyrða á við: - Lengri fjarvera í eitt eða fleiri skipti vegna skyldubundinnar herþjónustu. - Fjarvera að hámarki 12 mánuði samfleytt af áríðandi ástæðum, svo sem vegna þungunar og barneignar, alvarlegra veikinda, náms eða starfsnáms eða starfa sem viðkomandi er sendur til í öðru EES/EFTA ríki eða þriðja landi.
Ef þú ferð úr landi lengur en 6 mánuði og engin af ofangreindum ástæðum eiga við, þarftu að skrá þig úr landi hér. Nánari upplýsingar um flutninga úr landi er að finna hér.
Ef þú skráðir þig úr landi, en ert kominn aftur til landsins, þarf að sækja aftur um lögheimilisskráningu innan 3 mánaða með umsókn A-271.
Hafi EES/EFTA ríkisborgari fengið ótímabundinn dvalarrétt á Íslandi, hefur dvöl erlendis ekki áhrif á dvalarrétt hans nema hún vari lengur en tvö ár.
Vakin er athygli á að það er ekki heimilt að vera með skráð lögheimili í tveimur löndum á sama tíma, samkvæmt 1. mgr. 2. gr. laga nr. 80/2018 um lögheimili og aðsetur.
Þú getur sótt um lögheimilisskráningu með umsókn A-270 sem er að finna hægra megin á síðunni.
Með umsókn þarf ávallt að leggja fram gilt vegabréf eða persónuskilríki ásamt nauðsynlegum gögnum sem sýna fram á að þú uppfyllir skilyrði til lögheimilisskráningar.
Þeir sem hyggjast dvelja á Íslandi sem námsmenn þurfa að leggja fram eftirfarandi gögn:
- Staðfestingu á því að þeir séu innritaðir í viðurkennda námsstofnun með það að meginmarkmiði að öðlast þar menntun eða starfsþjálfun
- Staðfestingu á að þeir hafi fullnægjandi sjúkratryggingu
- Yfirlýsing um að þeir hafi nægjanlegt fé til að framfleyta sér og fjölskyldumeðlimum sínum. Sjá yfirlýsingareyðublað hér.
Valkvætt er að senda eftirfarandi gögn með umsókn en ávallt þarf að sýna frumrit við komu til landsins :
- Fæðingarvottorð
- Hjúskaparstöðuvottorð. Þar sem skráning hjúskaparstöðu getur haft áhrif á réttindi einstaklinga, og eftir atvikum barna þeirra, ráðleggur stofnunin að því vottorði sé skilað inn (ef við á).
Öll gögn skulu vera á íslensku eða ensku. Ef gögn eru á öðru tungumáli, skal skila inn frumriti ásamt löggildri þýðingu frá löggildum skjalaþýðanda.