Bannmerking ætlað einstaklingum
Bannmerking ætlað einstaklingum
Hjá Þjóðskrá Íslands getur fólk undanþegið sig því að vera á úrtakslistum úr þjóðskrá vegna markaðsstarfsemi með því að óska eftir að vera skráð á svokallaða bannskrá í þjóðskrá.
Einstaklingar sem eru skráðir á bannskrá koma t.d. ekki fram á úrtakslistum úr þjóðskrá sem kann að vera beitt í markaðssetningarskyni eða öðrum úrtökum sem byggja á skrám þar sem veitt hefur verið heimild til notkunar á skránni í markaðssetningarskyni. Rannsóknir sem falla undir vísindarannsóknir eru undanskildar. Óheimilt er að senda markpóst til barna, en heimilt er að senda markaðsefni til foreldra barna að því gefnu að þeir séu ekki skráðir á bannskrá.
Á Mínum síðum á Ísland.is getur þú séð hvort þú ert bannmerkt/ur í þjóðskrá. Ef þú telur að bannmerking þín í þjóðskrá hafi ekki verið virt má senda tölvupóst á skra@skra.is, gefa upplýsingar um þann sem kvartar og þann aðila sem kvörtun beinist að og mun Þjóðskrá Íslands þá kanna hvort viðkomandi úrtaksaðili hafi heimild til að framkvæma úrtak.
Bannmerkingar í símaskrá byggja á lögum um fjarskipti og þarf að skrá sérstaklega hjá símafyrirtækjum.