Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman upplýsingar um fjölda þinglýstra leigusamninga um íbúðarhúsnæði eftir landshlutum í október 2015.
Vegna verkfalla starfsmanna SFR hjá sýslumannsembættum í síðari hluta október varð töf á móttöku nýrra samninga.
Heildarfjöldi samninga á landinu var 607 í október 2015 og fækkar þeim um 55,2% frá september 2015 og um 32,5% frá október 2014.
| Svæði | Október 2014 | September 2015 | Október 2015 | Breyting milli ára | Breyting milli mánaða |
|---|---|---|---|---|---|
| Höfuðborgarsvæðið | 544 | 752 | 371 | -31,8% | -50,7% |
| Suðurnes | 122 | 120 | 78 | -36,1% | -35,0% |
| Vesturland | 55 | 103 | 54 | -1,8% | -47,6% |
| Vestfirðir | 7 | 19 | 5 | -28,6% | -73,7% |
| Norðurland | 98 | 277 | 59 | -39,8% | -78,7% |
| Austurland | 23 | 31 | 18 | -21,7% | -41,9% |
| Suðurland | 50 | 53 | 22 | -56.0% | -58,5% |
| Samtals | 899 | 1355 | 607 | -32,5% | -55,2% |
Smelltu hér til að skoða tímaraðir frá árinu 2005 í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.