Þjóðskrá03. desember 2018

Íbúafjöldi eftir sveitarfélögum - desember 2018

Íbúum Reykjavíkur fjölgaði um 2.573 á tímabilinu frá 1. desember 2017 til 1. desember sl. Hlutfallsleg aukning var um 2,0% í höfuðborginni.

Íbúum Reykjavíkur fjölgaði um 2.573 á tímabilinu frá 1. desember 2017 til 1. desember sl. Hlutfallsleg aukning var um 2,0% í höfuðborginni. Það sveitarfélag sem kom næst var Reykjanes-bær með 1.007 einstaklinga sem er 2,8% fjölgun síðastliðna 12 mánuði.  Á umræddu tímabili fjölgaði íbúum Mosfellsbæjar hlutfallslega mest af sveitarfélögum á höfuð-borgarsvæðinu eða um 8,5% sem er fjölgun uppá 893 íbúa.

Hlutfallslega mest fjölgun í Mýrdalshreppi

Þegar horft er til alls landsins þá fjölgaði íbúum Mýrdalshrepps mest eða um 10,9% en íbúum þar fjölgaði úr 626 í 694 íbúa.

Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Reykhólahrepp um 7,2% og í Norðurþingi um 7,0%. Þess má geta að af öllum 72 sveitarfélögum landsins þá fækkaði íbúum í 21 sveitarfélagi á umræddu tímabili. 

Fjölgun í öllum landshlutum nema Norðurlandi eystra

Fjölgun hefur orðið í öllum landshlutum nema Norðurlandi eystra. Hlutfallslega fjölgaði íbúum mest á Suðurnesjum eða um 5,2% og á Suðurlandi um 3,3%. Á Norðurlandi eystra fækkaði íbúum hins vegar um 0,2%.  

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2017.  

Þjóðskrá Íslands birtir hér eftir mánaðarlega upplýsingar um íbúafjölda eftir sveitarfélögum.  Upplýsingarnar byggjast á skráðri búsetu einstaklinga í þjóðskrá þann 1. hvers mánaðar. 

 


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar