Fólk17. ágúst 2021

Viðmiðunardagur fyrir Alþingiskosningar er 21. ágúst nk.

Lögheimilisflutningar þurfa að hafa borist fyrir 21. ágúst nk. til að hafa gildi fyrir Alþingiskosningarnar sem fram fara þann 25. september 2021.

Viðmiðunardagur fyrir komandi Alþingiskosningar er 21. ágúst nk. Finna má ýmsar upplýsingar um kosningarnar á kosning.is en kosningarnar fara fram þann 25. september nk. Flutningur á lögheimili á milli sveitarfélaga og innan sveitarfélags, sem á sér stað eftir 20. ágúst nk. hefur ekki áhrif á útgefinn kjörskrárstofn. Þetta þýðir að tilkynningar um lögheimilis breytingar þurfa að berast í síðasta lagi 20. ágúst eigi þær breytingar að verða skráðar í þjóðskrá fyrir viðmiðunardag.

Þann 24. ágúst nk. er gert ráð fyrir á opnað verði fyrir vefuppflettið „Hvar á ég að kjósa“ inni á skra.is þar sem einstaklingar geta athugað hvar þeir eigi að kjósa.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar