Fólk08. maí 2025

Fjöldi íbúa eftir sveitarfélögum 1. maí 2025

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 353 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2024 til 1. maí 2025 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 118 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 93 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fjölgað um 47 íbúa og í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði um 178 íbúa.

Fjölgar hlutfallslega mest í Tjörneshreppi

Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum Tjörneshrepps fjölgað hlutfallslega mest frá 1. desember 2024 um 7,3% en íbúum þar fjölgaði um 4 íbúa. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Fljótsdalshreppi eða um 7%.  Af 62 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 18 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 44 sveitarfélögum. 

Grindavík

Íbúum Grindavíkurbæjar fækkar um 475 á tímabilinu eða um 33,7%.

Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2024.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar