Fólk13. maí 2025

Skráning í trú- og lífsskoðunarfélög fram til 1. maí 2025

Alls voru 224.659 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. maí síðastliðinn samkvæmt skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum einstaklingum í þjóðkirkjuna fækkað um 304 síðan 1. desember 2024. Næst fjölmennasta trú- og lífsskoðunarfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 15.669 skráða meðlimi og í þriðja sæti yfir fjölmennasta trú- og lífsskoðunarfélag er Fríkirkjan í Reykjavík með 9.941 skráða meðlimi.

Fjölgað mest í Kaþólsku kirkjunni

Frá 1. desember 2024 hefur fjölgun meðlima í trú- og lífsskoðunarfélögum verið mest í Kaþólsku kirkjunni eða um 121 meðlimi. Mest hlutfallsleg fjölgun var hjá Wat Phra búddistasamtökunum, eða um 11,5%.

Ótilgreint og utan trú- og lífsskoðunarfélaga

Alls voru 30.849 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga sem er 0,2% hækkun frá 1. des 2024. Ef að einstaklingur er utan trú- eða lífsskoðunarfélaga þá hefur sá einstaklingur tekið afstöðu til þeirrar skráningar sinnar. Alls voru 91.139 einstaklingar skráðir með ótilgreinda skráningu. Ef að einstaklingur er með ótilgreinda skráningu þá hefur hann ekki tekið afstöðu til skráningar í trú- eða lífsskoðunarfélag. Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við tölur frá 1. desember 2021-2024.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar