Fólk15. maí 2025

Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi 1. maí 2025

Alls voru 81.277 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. maí sl. og fjölgaði þeim um 731 einstaklinga frá 1. desember 2024 eða um 0,9%. Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 685 einstaklinga eða um 0,2%.

 

Alls voru 81.277 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. maí sl. og fjölgaði þeim um 731 einstaklinga frá 1. desember 2024 eða um 0,9%.

Ríkisborgurum frá Úkraínu og Palestínu heldur áfram að fjölga. Úkraínskum ríkisborgurum fjölgaði um 153 eða 3,2% og ríkisborgurum frá Palestínu fjölgaði um 31 eða 3,8% frá 1. desember sl. Pólskum ríkisborgurum fækkaði um 123 og eru nú 26.416 pólskir ríkisborgarar með lögheimili á Íslandi.

Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 685 einstaklinga eða um 0,2%.

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. maí 2025 til samanburðar við stöðuna 1. desember 2019-2024.

Hlutfall erlendra ríkisborgara

 

Þróun erlendra ríkisborgara

 

Þessar tölur eru byggðar á tilkynningum um einstaklinga sem skráðir eru í Þjóðskrá.  
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimilda.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar