Alls voru 81.789 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. júní sl. og fjölgaði þeim um 1.243 einstaklinga frá 1. desember 2024 eða um 1,5%.
Ríkisborgurum frá Úkraínu og Palestínu heldur áfram að fjölga. Úkraínskum ríkisborgurum fjölgaði um 204 eða 4,2% og ríkisborgurum frá Palestínu fjölgaði um 41 eða 5,1% frá 1. desember sl. Pólskum ríkisborgurum fækkaði um 37 og eru nú 26.502 pólskir ríkisborgarar með lögheimili á Íslandi.
Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 846 einstaklinga eða um 0,3%.
Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. júní 2025 til samanburðar við stöðuna 1. desember 2019-2024.
Hlutfall erlendra ríkisborgara
Þróun erlendra ríkisborgara
Þessar tölur eru byggðar á tilkynningum um einstaklinga sem skráðir eru í Þjóðskrá.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimilda.