Fólk08. júlí 2025

Fjöldi íbúa eftir sveitarfélögum 1. júlí 2025

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 516 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2024 til 1. júlí 2025 og íbúum Hafnarfjarðar fjölgaði á sama tímabili um 544 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 115 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fjölgað um 189 íbúa og í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði um 324 íbúa.

Fjölgar hlutfallslega mest í Fljótsdalshreppi

Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum í Grímsnes- og Grafningshrepp fjölgað hlutfallslega mest frá 1. desember 2024 um 7,5% en íbúum þar fjölgaði um 46 íbúa. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Sveitarfélaginu Vogar eða um 6,4%.  Af 62 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 17 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 45 sveitarfélögum. 

Grindavík

Íbúum Grindavíkurbæjar fækkar um 540 á tímabilinu eða um 38,4%.

Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2024.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar