Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 510 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2024 til 1. ágúst 2025 og íbúum Hafnarfjarðar fjölgaði á sama tímabili um 587 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 145 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fjölgað um 176 íbúa og í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði um 396 íbúa.
Fjölgar hlutfallslega mest í Grímsnes- og Grafningshreppi
Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum í Grímsnes- og Grafningshrepp fjölgað hlutfallslega mest frá 1. desember 2024 um 9,7% en íbúum þar fjölgaði um 59 íbúa. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Sveitarfélaginu Vogar eða um 8%. Af 62 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 13 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 49 sveitarfélögum.
Grindavík
Íbúum Grindavíkurbæjar fækkar um 538 á tímabilinu eða um 38,2%.
Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2024.
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.