Alls skráðu 5.268 einstaklingar flutning innanlands í júlí til Þjóðskrár. Þetta er fjölgun frá síðasta mánuði eða um 7,9% þegar 4.884 einstaklingar skráðu flutning innanlands. Miðað við sama mánuð á síðasta ári er niðurstaðan fækkun um 8,5% þegar 5.756 einstaklingar skráðu flutning innanlands.
Þegar horft er til flutninga innan og milli landshluta þá kemur í ljós að 3.449 einstaklingar fluttu lögheimili sl. mánuð á höfuðborgarsvæðinu. Af þeim fluttu 3.031 einstaklingar innan svæðisins.
Á Suðurnesjum fluttu 422 lögheimili í síðusta mánuði. Þar af fluttu fluttu 290 innan landshlutans og 104 til höfuðborgarsvæðisins.
Á Suðurlandi fluttu 418 lögheimili sitt í síðasta mánuði. Þar af fluttu 315 innan landshlutans en 62 til höfuðborgarsvæðisins.
Flutningur innan og milli landshluta
| Frá / til | Höfuðborgar- svæðið | Suðurnes | Vesturland | Vestfirðir | Norðurland- vestra |
Norðurland- eystra |
Austurland | Suðurland | Alls frá |
| Höfuðborgarsvæðið | 3.031 | 94 | 44 | 21 | 14 | 79 | 13 | 153 | 3.449 |
| Suðurnes | 104 | 290 | 4 | 3 | 2 | 6 | 1 | 12 | 422 |
| Vesturland | 47 | 13 | 191 | 5 | 4 | 11 | 1 | 4 | 276 |
| Vestfirðir | 16 | 1 | 4 | 54 | 0 | 1 | 1 | 6 | 83 |
| Norðurland-Vestra | 9 | 1 | 2 | 0 | 45 | 3 | 1 | 3 | 64 |
| Norðurland-Eystra | 81 | 1 | 4 | 1 | 2 | 310 | 10 | 12 | 421 |
| Austurland | 16 | 4 | 0 | 2 | 2 | 4 | 101 | 6 | 135 |
| Suðurland | 62 | 11 | 8 | 7 | 4 | 6 | 5 | 315 | 418 |
| Alls til | 3.366 | 415 | 257 | 93 | 73 | 420 | 133 | 511 | 5.268 |
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.