Fólk18. september 2025

Flutningur innanlands í ágúst 2025

Alls skráðu 5.667 einstaklingar flutning innanlands í ágúst til Þjóðskrár. Þetta er fjölgun frá síðasta mánuði eða um 7,6% þegar 5.268 einstaklingar skráðu flutning innanlands. Miðað við sama mánuð á síðasta ári er niðurstaðan fækkun um 7% þegar 6.092 einstaklingar skráðu flutning innanlands.

Þegar horft er til flutninga innan og milli landshluta þá kemur í ljós að 3.704 einstaklingar fluttu lögheimili sl. mánuð á höfuðborgarsvæðinu. Af þeim fluttu 3.232 einstaklingar innan svæðisins.

Á Suðurnesjum fluttu 426 lögheimili í síðusta mánuði. Þar af fluttu fluttu 295 innan landshlutans og 97 til höfuðborgarsvæðisins.

Á Suðurlandi fluttu 450 lögheimili sitt í síðasta mánuði. Þar af fluttu 301 innan landshlutans en 101 til höfuðborgarsvæðisins.

Flutningur innan og milli landshluta

Frá / til Höfuðborgar- svæðið Suðurnes Vesturland Vestfirðir Norðurland-
vestra
Norðurland-
eystra
Austurland Suðurland Alls frá
Höfuðborgarsvæðið 3.232 94 66 44 9 78 28 153 3.704
Suðurnes 97 295 9 0 1 17 3 4 426
Vesturland 45 5 173 3 2 9 2 14 253
Vestfirðir 33 3 3 63 0 4 1 8 115
Norðurland-Vestra 16 0 4 0 52 5 1 9 87
Norðurland-Eystra 102 13 2 3 1 360 3 20 504
Austurland 30 2 3 0 0 10 80 3 128
Suðurland 101 5 4 0 6 12 21 301 450
Alls til 3.656 417 264 113 71 495 139 512 5.667

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar