Alls voru 224.244 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. október síðastliðinn samkvæmt skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum einstaklingum í þjóðkirkjuna fækkað um 719 síðan 1. desember 2024. Næst fjölmennasta trú- og lífsskoðunarfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 15.822 skráða meðlimi og í þriðja sæti yfir fjölmennasta trú- og lífsskoðunarfélag er Fríkirkjan í Reykjavík með 10.003 skráða meðlimi.
Fjölgað mest í Siðmennt
Frá 1. desember 2024 hefur fjölgun meðlima í trú- og lífsskoðunarfélögum verið mest í Siðmennt eða um 278 meðlimi. Mest hlutfallsleg fjölgun var hjá Wat Phra búddistasamtökunum, eða um 22,4%.
Ótilgreint og utan trú- og lífsskoðunarfélaga
Alls voru 30.959 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga sem er 0,6% hækkun frá 1. des 2024. Ef að einstaklingur er utan trú- eða lífsskoðunarfélaga þá hefur sá einstaklingur tekið afstöðu til þeirrar skráningar sinnar. Alls voru 93.600 einstaklingar skráðir með ótilgreinda skráningu. Ef að einstaklingur er með ótilgreinda skráningu þá hefur hann ekki tekið afstöðu til skráningar í trú- eða lífsskoðunarfélag. Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við tölur frá 1. desember 2021-2024.
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.