Alls voru 82.901 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. október sl. og fjölgaði þeim um 2.355 einstaklinga frá 1. desember 2024 eða um 2,9%.
Mest fjölgun hefur verið á ríkisborgurum frá Venesúela, þeim hefur fjölgað um 253 einstaklinga frá 1. des. sl. Þar á eftir koma ríkisborgarar frá Rúmeníu og loks Spáni.
Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 1.764 einstaklinga eða um 0,5%.
Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. september 2025 til samanburðar við stöðuna 1. desember 2019-2024.
Hlutfall erlendra ríkisborgara
Þróun erlendra ríkisborgara
Þessar tölur eru byggðar á tilkynningum um einstaklinga sem skráðir eru í Þjóðskrá.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimilda.