Alls voru 224.056 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. desember síðastliðinn samkvæmt skráningu Þjóðskrár og er því fjölmennasta trú- og lífsskoðunarfélag landsins. Næst fjölmennasta félagið er Kaþólska kirkjan með 15.917 skráða meðlimi og í þriðja sæti er Fríkirkjan í Reykjavík með 10.053 skráða meðlimi.
Fjölgað mest í Kaþólsku kirkjunni
Frá 1. desember 2024 hefur fjölgun meðlima í trú- og lífsskoðunarfélögum verið mest í Kaþólsku kirkjunni eða um 369 meðlimi. Mest hlutfallsleg fjölgun var hjá Wat Phra búddistasamtökunum, eða um 25%.
Ótilgreint og utan trú- og lífsskoðunarfélaga
Alls voru 30.931 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga sem er 0,5% hækkun frá 1. des 2024. Ef að einstaklingur er utan trú- eða lífsskoðunarfélaga þá hefur sá einstaklingur tekið afstöðu til þeirrar skráningar sinnar. Alls voru 94.646 einstaklingar skráðir með ótilgreinda skráningu. Ef að einstaklingur er með ótilgreinda skráningu þá hefur hann ekki tekið afstöðu til skráningar í trú- eða lífsskoðunarfélag. Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við tölur frá 1. desember 2021-2024.
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.