Alls skráðu 4.418 einstaklingar flutning innanlands í nóvember til Þjóðskrár. Þetta er fækkun frá síðasta mánuði eða um 8,4% þegar 4.822 einstaklingar skráðu flutning innanlands. Miðað við sama mánuð á síðasta ári er niðurstaðan fækkun um 14,8% þegar 5.184 einstaklingar skráðu flutning innanlands.
Þegar horft er til flutninga innan og milli landshluta þá kemur í ljós að 2.805 einstaklingar fluttu lögheimili sl. mánuð á höfuðborgarsvæðinu. Af þeim fluttu 2.499 einstaklingar innan svæðisins.
Á Suðurnesjum fluttu 504 lögheimili í síðusta mánuði. Þar af fluttu fluttu 310 innan landshlutans og 160 til höfuðborgarsvæðisins.
Á Suðurlandi fluttu 378 lögheimili sitt í síðasta mánuði. Þar af fluttu 276 innan landshlutans en 69 til höfuðborgarsvæðisins.
Flutningur innan og milli landshluta
| Frá / til | Höfuðborgar- svæðið | Suðurnes | Vesturland | Vestfirðir | Norðurland- vestra |
Norðurland- eystra |
Austurland | Suðurland | Alls frá |
| Höfuðborgarsvæðið | 2.499 | 61 | 48 | 15 | 7 | 43 | 20 | 112 | 2.805 |
| Suðurnes | 160 | 310 | 5 | 8 | 0 | 8 | 6 | 7 | 504 |
| Vesturland | 45 | 4 | 100 | 1 | 1 | 2 | 0 | 7 | 160 |
| Vestfirðir | 14 | 0 | 3 | 54 | 0 | 0 | 2 | 1 | 74 |
| Norðurland-Vestra | 5 | 0 | 1 | 0 | 28 | 2 | 0 | 2 | 38 |
| Norðurland-Eystra | 51 | 1 | 4 | 3 | 3 | 280 | 2 | 9 | 353 |
| Austurland | 12 | 5 | 0 | 1 | 0 | 9 | 77 | 2 | 106 |
| Suðurland | 69 | 13 | 2 | 3 | 2 | 9 | 4 | 276 | 378 |
| Alls til | 2.855 | 394 | 163 | 85 | 41 | 353 | 111 | 416 | 4.418 |
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.