Fólk09. janúar 2026

Skráning í trú- og lífsskoðunarfélög fram til 1. janúar 2026

Alls voru 224.118 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. janúar síðastliðinn samkvæmt skráningu Þjóðskrár og er því fjölmennasta trú- og lífsskoðunarfélag landsins. Næst fjölmennasta félagið er Kaþólska kirkjan með 15.956 skráða meðlimi og í þriðja sæti er Fríkirkjan í Reykjavík með 10.061 skráða meðlimi.

Fjölgað mest í Þjóðkirkjunni

Frá 1. desember 2025 hefur fjölgun meðlima í trú- og lífsskoðunarfélögum verið mest í Þjóðkirkjunni eða um 62 meðlimi. Mest hlutfallsleg fjölgun var hjá Nýja Avalon, eða um 250%.

Ótilgreint og utan trú- og lífsskoðunarfélaga

Alls voru 30.866 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga sem er 0,2% lækkun frá 1. des 2025. Ef að einstaklingur er utan trú- eða lífsskoðunarfélaga þá hefur sá einstaklingur tekið afstöðu til þeirrar skráningar sinnar. Alls voru 95.092 einstaklingar skráðir með ótilgreinda skráningu. Ef að einstaklingur er með ótilgreinda skráningu þá hefur hann ekki tekið afstöðu til skráningar í trú- eða lífsskoðunarfélag. Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við tölur frá 1. desember 2021-2025.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar