Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um elstu íbúa landsins. Í dag eru 41 einstaklingar 100 ára og eldri og tveir þeirra eiga maka á lífi. Elsti núlifandi einstaklingurinn búsettur á Íslandi er kona fædd árið 1920 og er því 105 ára. Hún er búsett á Höfuðborgarsvæðinu.
Aldursdreifing og kyn
Konur eru í meirihluta þeirra sem hafa náð 100 ára aldri eða alls 32 á meðan það eru 9 karlar sem eru 100 ára og eldri. Alls eru 15 einstaklingur 100 ára, þar af 13 konur og 2 karlar. Þeir einstaklingar sem eru yfir 100 ára eru alls 19 konur en 7 karlar. Ef við skoðum sérstaklega hvert ár þá eru 10 konur og 5 karlar 101 árs, 4 konur og 1 karl eru 102 ára og 1 karl og 2 konur 103 ára. Þá er 1 kona 104 ára og 2 konur 105 ára.
Skipting eftir landshlutum
Þegar horft er á landshluta má sjá að flestir einstaklingar 100 ára og eldri eru búsettir á höfuðborgarsvæðinu eða 30 talsins.
Fjöldi einstaklinga 100 ára og eldri eftir árum
Hér má sjá fjölda einstaklinga 100 ára og eldri ár hvert eftir kyni frá 2005 til dagsins í dag.
Aldursbil landsmanna
Til að skoða samanburð á aldri einstaklinga sem eru búsettir á Íslandi er hægt að sjá fjölda einstaklinga eftir aldursbilum hér að neðan.
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á einstaklingum búsettum á Íslandi þann 26. janúar 2026.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.