Fólk06. febrúar 2026

Fjöldi íbúa eftir sveitarfélögum 1. febrúar 2026

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 333 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2025 til 1. febrúar 2026 og íbúum Hafnarfjarðar fjölgaði á sama tímabili um 183 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 57 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fækkað um 16 íbúa og í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði um 44 íbúa.

Fjölgar hlutfallslega mest í Fljótsdalshreppi

Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum í Fljótsdaleshreppi fjölgað hlutfallslega mest frá 1. desember 2025 um 5,1% en íbúum þar fjölgaði um 6 íbúa. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Súðavíkurhreppi eða um 2,2%.  Af 62 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 24 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 38 sveitarfélögum. 

Grindavík

Íbúum Grindavíkurbæjar fjölgaði um 2 á tímabilinu eða um 0,2%.

Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburður við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2025.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar