Niðurstöðurnar voru kynntar á hátíð Sameykis þann 12. febrúar sl. á Hilton Nordica. Aðeins Menntaskólinn á Egilsstöðum var ofar en Þjóðskrá í flokki meðalstórra stofnana.
Þegar litið er til heildarniðurstaðna allra stofnana í landinu skipar Þjóðskrá 20. sæti af 139 stofnunum. Það er einstakt fagnaðarefni að hver einasti starfsmaður tók þátt í könnuninni. Þessi glæsilega niðurstaða er beinn afrakstur þess frábæra vinnuframlags og jákvæða viðmóts sem einkennir starfsfólk okkar og tryggir stöðu Þjóðskrár sem fyrirmyndarstofnun.

Gildi Þjóðskrár er gleði, kraftur og samvinna. Það er einlæg trú okkar að ánægt starfsfólk veiti betri þjónustu.
Stofnun ársins er samstarfsverkefni Sameykis, Fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Reykjavíkurborgar og fjölmargra annarra stofnana en hún nær til um 35.000 manns á opinberum vinnumarkaði.
Í könnuninni eru þátttakendur spurðir út í níu þætti í starfsumhverfinu þ.e. trúverðugleika stjórnenda, starfsanda, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleika í starfi, sjálfstæði í starfi, ímynd stofnunar, ánægju og stolt og jafnrétti.
Markmiðið með að velja fyrirmyndarstofnanir er að hvetja stjórnendur stofnana til að huga að mannauðsmálum og auka umræðu um aðbúnað og líðan starfsmanna á vinnustöðum.
.jpg)