Fólk17. febrúar 2026

Skráning námsmanna á Norðurlöndum á kjörskrá

Vegna sveitarstjórnarkosninga sem fram fara þann 16. maí nk. geta námsmenn á norðurlöndum sótt um að vera teknir á kjörskrá. Frestur til að skila inn umsókn rennur út þann 6. apríl nk.

Vegna sveitarstjórnarkosninga sem fram fara þann 16. maí nk. geta námsmenn á norðurlöndum sótt um að vera teknir á kjörskrá.

Frestur til að skila inn umsókn rennur út þann 6. apríl nk.

Umsóknin er að finna hér - Umsókn K-101 Námsmaður á Norðurlöndum tekinn á kjörskrá

Kosning
  • Umsóknin er rafræn og þarf að nota rafræna innskráningu. Hægt er að nota Auðkennisappið eða rafræn skilríki á síma.
  • Staðfesting á námsvist þarf að fylgja með umsókn.
  • Maki eða sambúðarmaki námsmanns og börn þeirra sem náð hafa 18 ára aldri og dvelja með þeim í viðkomandi landi, tilkynna sig á sama hætti með tilvísun í viðkomandi námsmann ásamt afriti af staðfestingu á námsvist.

Athugið að umsóknin gildir eingöngu fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí 2026.

Nánari upplýsingar í síma 515-5300 eða með tölvupósti á kosningar@skra.is


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar