Alls skráðu 4.550 einstaklingar flutning innanlands í janúar til Þjóðskrár. Þetta er fjölgun frá síðasta mánuði eða um 8,6% þegar 4.190 einstaklingar skráðu flutning innanlands. Miðað við sama mánuð á síðasta ári er niðurstaðan fækkun um 6,9% þegar 4.889 einstaklingar skráðu flutning innanlands.
Þegar horft er til flutninga innan og milli landshluta þá kemur í ljós að 2.940 einstaklingar fluttu lögheimili sl. mánuð á höfuðborgarsvæðinu. Af þeim fluttu 2.589 einstaklingar innan svæðisins.
Á Suðurnesjum fluttu 395 lögheimili í síðusta mánuði. Þar af fluttu fluttu 296 innan landshlutans og 79 til höfuðborgarsvæðisins.
Á Suðurlandi fluttu 390 lögheimili sitt í síðasta mánuði. Þar af fluttu 290 innan landshlutans en 68 til höfuðborgarsvæðisins.
Flutningur innan og milli landshluta
| Frá / til | Höfuðborgar- svæðið | Suðurnes | Vesturland | Vestfirðir | Norðurland- vestra |
Norðurland- eystra |
Austurland | Suðurland | Alls frá |
| Höfuðborgarsvæðið | 2.589 | 80 | 46 | 22 | 10 | 53 | 14 | 126 | 2.940 |
| Suðurnes | 79 | 296 | 4 | 1 | 1 | 2 | 1 | 11 | 395 |
| Vesturland | 34 | 5 | 98 | 2 | 3 | 1 | 0 | 2 | 145 |
| Vestfirðir | 16 | 7 | 14 | 43 | 0 | 3 | 0 | 3 | 86 |
| Norðurland-Vestra | 14 | 3 | 0 | 1 | 36 | 6 | 2 | 1 | 63 |
| Norðurland-Eystra | 50 | 7 | 7 | 4 | 3 | 315 | 12 | 7 | 405 |
| Austurland | 21 | 5 | 1 | 6 | 0 | 14 | 77 | 2 | 126 |
| Suðurland | 68 | 11 | 8 | 4 | 0 | 5 | 4 | 290 | 390 |
| Alls til | 2.871 | 414 | 178 | 83 | 53 | 399 | 110 | 442 | 4.550 |
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.