Alls skráðu 4.156 einstaklingar flutning innanlands í febrúar til Þjóðskrár. Þetta er fækkun frá síðasta mánuði eða um 8,7% þegar 4.550 einstaklingar skráðu flutning innanlands. Miðað við sama mánuð á síðasta ári er niðurstaðan fækkun um 5,1% þegar 4.380 einstaklingar skráðu flutning innanlands.
Þegar horft er til flutninga innan og milli landshluta þá kemur í ljós að 2.726 einstaklingar fluttu lögheimili sl. mánuð á höfuðborgarsvæðinu. Af þeim fluttu 2.464 einstaklingar innan svæðisins.
Á Suðurnesjum fluttu 383 lögheimili í síðusta mánuði. Þar af fluttu fluttu 282 innan landshlutans og 78 til höfuðborgarsvæðisins.
Á Suðurlandi fluttu 341 lögheimili sitt í síðasta mánuði. Þar af fluttu 261 innan landshlutans en 66 til höfuðborgarsvæðisins.
Flutningur innan og milli landshluta
| Frá / til | Höfuðborgar- svæðið | Suðurnes | Vesturland | Vestfirðir | Norðurland- vestra |
Norðurland- eystra |
Austurland | Suðurland | Alls frá |
| Höfuðborgarsvæðið | 2.464 | 68 | 27 | 14 | 12 | 33 | 12 | 96 | 2.726 |
| Suðurnes | 78 | 282 | 0 | 3 | 0 | 11 | 0 | 9 | 383 |
| Vesturland | 46 | 1 | 123 | 2 | 0 | 2 | 2 | 8 | 184 |
| Vestfirðir | 17 | 1 | 4 | 52 | 0 | 0 | 1 | 3 | 78 |
| Norðurland-Vestra | 8 | 2 | 4 | 0 | 24 | 3 | 0 | 0 | 41 |
| Norðurland-Eystra | 27 | 2 | 1 | 1 | 3 | 253 | 3 | 10 | 300 |
| Austurland | 25 | 1 | 3 | 2 | 0 | 6 | 64 | 2 | 103 |
| Suðurland | 66 | 9 | 2 | 0 | 1 | 2 | 0 | 261 | 341 |
| Alls til | 2.731 | 366 | 164 | 74 | 40 | 310 | 82 | 389 | 4.156 |
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.