Birnir og Matthías voru vinsælustu fyrstu eiginnöfn meðal nýfæddra drengja á síðasta ári en 33 drengjum var gefið nafnið Birnir og 29 drengjum nafnið Matthías. Næst vinsælustu nöfnin meðal drengja voru Jökull og Emil.
Matthildur og Embla voru vinsælustu nöfnin meðal nýfæddra stúlkna sem fyrsta eiginnafn, en 34 stúlkum var gefið nafnið Matthildur og 25 stúlkum nafnið Embla. Næst vinsælustu nöfnin meðal stúlkna voru Salka og Emma.
Hægt er að fletta upp öllum nöfnum og sjá hversu margir heita því nafni í þjóðskrá. Einnig er hægt að sjá yfirlit yfir vinsælustu nöfn nýfæddra barna eftir árum í Þjóðskrárgáttinni.
Vinsælustu fyrstu eiginnöfnin 2025
Samanburður milli ára
Ef horft er á samanburð á milli ára má sjá að drengjanafnið Birnir tekur fyrsta sætið af Emil og Jökli. Hástökkvari drengja á topp 10 listanum er Stefán, sem rýkur upp frá 47. sæti í 9.–11. sæti.
Hvað stúlkurnar varðar má sjá að stúlkunafnið Matthildur tekur fyrsta sætið af Aþenu og hækkar sig um 5 sæti frá fyrra ári. Hástökkvari á topp 10 listanum er nafnið Hildur sem stekkur úr 39. sæti í sæti 8-11.
| Nafn | 2025 | 2024 | Breyting |
| Birnir | 1 | 5 | |
| Matthías | 2 | 4 | |
| Jökull | 3-4 | 2 | |
| Emil | 3-4 | 1 | |
| Aron | 5 | 7 | |
| Ýmir | 6-7 | 13 | |
| Óliver | 6-7 | 3 | |
| Jón | 8 | 33 | |
| Björn | 9-11 | 40 | |
| Stefán | 9-11 | 47 |
| Nafn | 2025 | 2024 | Breyting |
| Matthildur | 1 | 6 | |
| Embla | 2 | 2 | |
| Salka | 3 | 22 | |
| Emma | 4 | 15 | |
| Sóldís | 5 | 34 | |
| Andrea | 6-7 | 8 | |
| Viktoría | 6-7 | 25 | |
| Hildur | 8-10 | 39 | |
| Sóley | 8-10 | 21 | |
| Emilía | 8-10 | 3 |
Algengustu fyrstu eiginnöfnin
Algengustu fyrstu eiginnöfnin á landinu má sjá hér að neðan og er röðun nafna lítillega breytt á milli ára. Með algengustu fyrstu eiginnöfnin er átt við alla núlifandi Íslendinga búsetta hér á landi.
Fjöldatölur miðast við 23. mars 2026.
| Röð | Nafn | Fjöldi |
| 1 | Jón | 4.897 |
| 2 | Guðrún | 4.314 |
| 3 | Anna | 4.025 |
| 4 | Sigurður | 3.930 |
| 5 | Guðmundur | 3.706 |
| 6 | Kristín | 3.316 |
| 7 | Sigríður | 3.019 |
| 8 | Gunnar | 2.991 |
| 9 | Margrét | 2.741 |
| 10 | Ólafur | 2.647 |
Fjöldi einstaklinga sem fæddust árið 2025 og var gefið annað eiginnafn voru
3.556 einstaklingar eða 76% af heildinni.
Máni var vinsælasta nafnið meðal drengja en þar á eftir eru það nöfnin
Þór og Leó. Vinsælasta nafnið meðal stúlkna var Rós og næst vinsælasta nafnið var María. Síðan koma nöfnin Sól og Líf.
Vinsælustu önnur eiginnöfn 2025
Samanburður milli ára
Ef horft er á samanburð milli ára má sjá að drengjanafnið Máni tekur fyrsta sætið af Þór. Þór, Leó og Freyr koma þar á eftir.
Hvað stúlkurnar varðar má sjá að Rós tekur fyrsta sætið af Sól og María kemur þar á eftir í öðru sæti. Rún er hástökkvari listans og fer úr 18. sæti í það sjöunda.
| Nafn | 2025 | 2024 | Breyting |
| Máni | 1 | 6 | |
| Þór | 2 | 1 | |
| Leó | 3-4 | 2 | |
| Freyr | 3-4 | 4 | |
| Snær | 5 | 8 | |
| Logi | 6 | 3 | |
| Orri | 7 | 9 | |
| Örn | 8 | 5 | |
| Hrafn | 9 | 12 | |
| Ingi | 10 | 7 |
| Nafn | 2025 | 2024 | Breyting |
| Rós | 1 | 2 | |
| María | 2 | 4 | |
| Sól | 3 | 1 | |
| Líf | 4-5 | 8 | |
| Ósk | 4-5 | 3 | |
| Björk | 6 | 5 | |
| Rún | 7 | 18 | |
| Kristín | 8 | 11 | |
| Dís | 9 | 15 | |
| Sif | 10-11 | 14 |