Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 343,2 stig í desember 2008 (janúar 1994=100) og lækkaði um 1,3% frá fyrra mánuði. Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 1,8%, síðastliðna 6 mánuði hefur hún lækkað um 1,5% og lækkun síðastliðna 12 mánuði var 2,5%.
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu fyrir janúar 2009 verður gefin út þriðjudaginn 17. febrúar 2009.
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.
Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.
Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun fasteignaverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Fasteignamat ríkisins áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Ef þú vilt skoða tímaröð fyrir vísitöluna, þá getur þú smellt hér til að skoðað gögnin í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.