Þjóðskrá21. mars 2012

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 109,9 stig í febrúar 2012 (janúar 2011=100) og lækkaði um 1% frá fyrra mánuði. Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 0,5% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 9,6%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 109,9 stig í febrúar 2012 (janúar 2011=100) og lækkaði um 1% frá fyrra mánuði. Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 0,5% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 9,6%.
Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í febrúar 2012.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 660 samningar, sem þinglýstir voru í febrúar 2012.  Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt.  Talnaupplýsingar um leiguverð í febrúar 2012 eru því unnar upp úr 458 leigusamningum sem þinglýst var í febrúar 2012.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í febrúar 2012 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

2203

1893

1637

1540

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

1671

1370

1256

Kópavogur

1618

1317

1349

Garðabær, Hafnarfjörður og Álftanes

1646

1432

1094

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

1771

1590

1477

1341

Breiðholt

1444

1315

1275

Kjalarnes og Mosfellsbær

1101

Suðurnes

1178

1013

807

Vesturland

1196

1049

901

Vestfirðir

909

Norðurland nema Akureyri

802

657

Akureyri

1373

1312

1132

1042

Austurland

1145

Suðurland

1197

1102

899

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks, upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar