Þjóðskrá21. nóvember 2012

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 118,4 stig í október 2012 (janúar 2011=100) og lækkar um 0,3% frá fyrra mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 8,7%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 118,4 stig í október 2012 (janúar 2011=100) og lækkar um 0,3% frá fyrra mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 8,7%.
Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í október 2012.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 880 samningar, sem þinglýst var í október 2012.  Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt.  Talnaupplýsingar um leiguverð í október 2012 eru því unnar upp úr 572 leigusamningum sem þinglýst var í október 2012.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í október 2012 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

1712

2006

1833

1656

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

1833

1878

1528

1328

Kópavogur

1818

1527

1506

1349

Garðabær, Hafnarfjörður og Álftanes

1822

1523

1529

1318

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

-

1733

1543

1352

Breiðholt

-

1633

1649

1199

Kjalarnes og Mosfellsbær

-

-

1446

1203

Suðurnes

-

1426

1015

861

Vesturland

-

1078

962

978

Vestfirðir

-

-

-

755

Norðurland nema Akureyri

-

1042

857

714

Akureyri

2171

1218

1248

1100

Austurland

-

-

1125

852

Suðurland

-

1238

983

905

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks, upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar