Þjóðskrá19. nóvember 2014

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 139,5 stig í október 2014 (janúar 2011=100) og hækkar um 0,7% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1,3% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 8,7%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 139,5 stig í október 2014 (janúar 2011=100) og hækkar um 0,7% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1,3% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 8,7%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í október 2014.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 1.215 samningar, sem þinglýst var í október 2014. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í október 2014 eru því unnar upp úr 786 leigusamningum sem þinglýst var í október 2014.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í október 2014 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

3094

2469

2151

1808

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

2769

2058

1784

1557

Kópavogur

2130

2121

1649

1593

Garðabær og Hafnarfjörður

-

2112

1681

1525

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

2766

2146

1825

1464

Breiðholt

2216

1933

1758

1667

Kjalarnes og Mosfellsbær

-

1765

-

1292

Suðurnes

-

1490

1110

982

Vesturland

-

1290

1065

914

Vestfirðir

-

-

-

810

Norðurland nema Akureyri

-

1131

1189

837

Akureyri

1715

1640

1550

1258

Austurland

-

-

1264

-

Suðurland

-

1482

1051

994

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar