EES Staðfesting vinnuveitanda á ráðningarsambandi
Staðfesting vinnuveitanda um ráðningarsamband við EES eða EFTA útlendings vegna umsóknar hans um skráningu í þjóðskrá til lengri tíma en þriggja mánaða.
Prókúruhafi fyrirtækis þarf að gefa starfsmanni umboð á island.is til að staðfesta ráðningarsamband. Hér eru leiðbeiningar.
Athugið! Einyrkjar (einstaklingar með rekstur á sinni eigin kennitölu) geta ekki staðfest rafrænt með þessum hætti. Vinsamlegast hafið samband við þjónustuver fyrir frekari upplýsingar
Athugið
Staðfesting vinnuveitanda um ráðningarsamband við EES eða EFTA útlendings vegna umsóknar hans um skráningu í þjóðskrá til lengri tíma en þriggja mánaða. Í tilvikum þar sem EES eða EFTA útlendingur sækir um skráningu á grundvelli þess að vera launþegi þá þarf hann að sýna fram á að hann hafi vinnu hér á landi og að laun séu fullnægjandi til framfærslu til 3ja mánaða. Eyðublað þetta kemur ekki í stað ráðningarsamnings milli einstaklings og atvinnurekanda.