Athugið!
Afgreiðslutími umsókna um lögheimilisskráningu á Íslandi er allt að 10 virkir dagar eftir að öllum fullnægjandi gögnum hefur verið skilað inn.
  • Þú getur verið búsettur á Íslandi sem hjúskapar- eða sambúðarmaki ef

    Hjúskaparmaki

    • Þú ert EES/EFTA ríkisborgari sem er í hjúskap með einstaklingi sem er með lögheimili á Íslandi og á framfæri hans.

     

    Sambúðarmaki

    • Þú ert ógiftur EES/EFTA ríkisborgari sem hefur verið í sambúð með ógiftum einstaklingi sem er með lögheimili á Íslandi og verður á framfæri hans.
  • EES/EFTA ríkisborgarar sem hyggjast dvelja hér á landi sem hjúskapar- eða sambúðarmakar skulu skrá lögheimili sitt á Íslandi eigi síðar en þremur mánuðum eftir komu til landsins og skulu skila inn eftirfarandi.

    Hjúskaparmakar

    • Frumrit hjónavígsluvottorðs ásamt þýðingu ef á við, skal koma með í eigin persónu á skrifstofu Þjóðskrár Íslands eða á næstu lögreglustöð.
    • Gögn sem sýna fram á að maki geti framfleytt sér og fjölskyldu sinni.

    Þú þarft að hafa einkasjúkratryggingu sem tryggir alla áhættu þar til þú hefur haft lögheimili á Íslandi í 6 mánuði. Sex mánaða lögheimilisskráning á Íslandi er forsenda þess að njóta sjúkratryggingar almannatrygginga.

    Það er á ábyrgð hvers og eins að þekkja skilmála sinnar tryggingar og tryggingafélags og að hún sé fullnægjandi og gild á Íslandi.

    Athugið að ef maki fékk lögheimilisskráningu á Íslandi á grundvelli þess að vera launþegi eða sjálfstætt starfandi þá þarf umsækjandi ekki að sýna fram á að hann sé sjúkratryggður eða hafi framfærslugetu.

     

    Sambúðarmakar

    • Umsókn um skráningu í sambúð skal skila inn með umsókn
    • Hjúskaparstöðuvottorð umsækjanda og sambúðarmaka.
    • Yfirlýsing sambúðarmaka um að maki muni framfleyta þér á meðan dvöl stendur.
    • Gögn sem sýna fram á að sambúðarmaki geti framfleytt sér og fjölskyldu sinni.

    Þú þarft að hafa einkasjúkratryggingu sem tryggir alla áhættu þar til þú hefur haft lögheimili á Íslandi í 6 mánuði. Sex mánaða lögheimilisskráning á Íslandi er forsenda þess að njóta sjúkratryggingar almannatrygginga.

    Það er á ábyrgð hvers og eins að þekkja skilmála sinnar tryggingar og tryggingafélags og að hún sé fullnægjandi og gild á Íslandi.

    Athugið að ef maki fékk lögheimilisskráningu á Íslandi á grundvelli þess að vera launþegi eða sjálfstætt starfandi þá þarf umsækjandi ekki að sýna fram á að hann sé sjúkratryggður eða hafi framfærslugetu.

    Athugið. Misnotkun eða svik geta leitt til þess að dvalarréttur einstaklings verði afturkallaður. 

  • Sem ríkisborgari EES/EFTA átt þú rétt til að dvelja og vinna á Íslandi. 

    EES/EFTA borgarar sem dvelja á Íslandi í 5 ár, geta átt rétt á ótímabundnum dvalarrétti ef þeir uppfylla skilyrði.

  • EES/EFTA ríkisborgari sem dvelur á Íslandi á grundvelli þess að vera hjúskapar eða sambúðarmaki, hefur rétt til búsetu svo lengi sem maki hans uppfyllir skilyrði til lögheimilisskráningar. Sem EES/EFTA ríkisborgari getur þú átt sjálfstæðan rétt á lögheimilisskráningu á Íslandi ef þú uppfyllir skilyrðin sjálfur.

    Ef þú hyggst dvelja hér á landi skemur en 3 mánuði þá uppfyllir þú ekki skilyrði til lögheimilisskráningar og getur sótt um kerfiskennitölu, sjá nánar hér.  Ef þú ert í atvinnuleit, hefur þú rétt til dvalar í allt að 6 mánuði áður en þú sækir um lögheimilisskráningu.

    Ef þú hyggst dvelja hér á landi lengur en 3 mánuði þarftu að sækja um lögheimilisskráningu á Íslandi. Þá hefur þú rétt til að dvelja á Íslandi svo lengi sem þú uppfyllir skilyrði til lögheimilisskráningar. 

  • Ef þú fékkst lögheimilisskráningu á grundvelli þess að vera hjúskapar- eða sambúðarmaki en ert ekki lengur í hjúskap eða sambúð, þá getur þú dvalið á Íslandi meðan þú uppfyllir skilyrði til lögheimilisskráningar, eins og t.d. sem : 

    • Launþegi
    • Sjálfstætt starfandi
    • Eigin framfærslu
    • Námsmaður
    • Starfsmaður erlends fyrirtækis

    Ef þú ert að fara úr landi vegna þess að þú uppfyllir ekki lengur skilyrði sem hjúskapar- eða sambúðarmaki, þarf að tilkynna flutning úr landi hér.

  • Einstaklingum er heimilt að fara erlendis í allt að 6 mánuði án þess að skrá lögheimili sitt úr landi. 

    Ekki þarf að skrá sig úr landi vegna dvalar erlendis lengur en 6 mánuði ef eitthvert eftirfarandi skilyrða á við:
    - Lengri fjarvera í eitt eða fleiri skipti vegna skyldubundinnar herþjónustu.
    - Fjarvera að hámarki 12 mánuði samfleytt af áríðandi ástæðum, svo sem vegna þungunar og barneignar, alvarlegra veikinda, náms eða starfsnáms eða starfa sem viðkomandi er sendur til í öðru EES/EFTA ríki eða þriðja landi.

    Ef þú ferð úr landi lengur en 6 mánuði og engin af ofangreindum ástæðum eiga við, þarftu að skrá þig úr landi hérNánari upplýsingar um flutninga úr landi er að finna hér.

    Ef þú skráðir þig úr landi, en ert kominn aftur til landsins, þarf að sækja aftur um lögheimilisskráningu innan 3 mánaða með umsókn A-271. 

    Hafi EES/EFTA ríkisborgari fengið ótímabundinn dvalarrétt á Íslandi, hefur dvöl erlendis ekki áhrif á dvalarrétt hans nema hún vari lengur en tvö ár.

    Vakin er athygli á að það er ekki heimilt að vera með skráð lögheimili í tveimur löndum á sama tíma, samkvæmt 1. mgr. 2. gr. laga nr. 80/2018 um lögheimili og aðsetur.

  • Þú getur sótt um lögheimilisskráningu með umsókn A-270 sem er að finna hægra megin á síðunni.

    Með umsókn þarf ávallt að leggja fram gilt vegabréf eða persónuskilríki ásamt nauðsynlegum gögnum sem sýna fram á að þú uppfyllir skilyrði til lögheimilisskráningar.

    Hvaða gögn þarf að skila með umsókn fyrir hjúskapar eða sambúðarmaka?

    Hjúskaparmaki

    • Hjónavígsluvottorð í frumriti ásamt þýðingu frá löggildum skjalaþýðanda ef þess þarf. Frumritið skal koma með á skrifstofu okkar eða á næstu lögreglustöð á pappír.
    • Gögn sem staðfesta framfærslugetu maka.
    • Afrit af skilríkjum maka.

    Þú þarft að hafa einkasjúkratryggingu sem tryggir alla áhættu þar til þú hefur haft lögheimili á Íslandi í 6 mánuði. Sex mánaða lögheimilisskráning á Íslandi er forsenda þess að njóta sjúkratryggingar almannatrygginga.

    Það er á ábyrgð hvers og eins að þekkja skilmála sinnar tryggingar og tryggingafélags og að hún sé fullnægjandi og gild á Íslandi.

    Athugið að ef maki fékk lögheimilisskráningu á Íslandi á grundvelli þess að vera launþegi eða sjálfstætt starfandi þá þarf umsækjandi ekki að sýna fram á að hann sé sjúkratryggður eða hafi framfærslugetu.

     

    Sambúðarmaki

    • Hjúskaparstöðuvottorð sem staðfestir að umsækjandi og sambúðarmaki séu ógiftir, skal vera í frumriti ásamt þýðingu frá löggildum skjalaþýðanda ef þess þarf. Frumritið skal koma með á skrifstofu okkar eða á næstu lögreglustöð á pappír.
    • Umsókn um skráningu í sambúð skal fylgja umsókn.
    • Yfirlýsing sambúðarmaka um vilja hans til að framfleyta umsækjanda.
    • Gögn sem staðfesta framfærslugetu sambúðarmaka.
    • Afrit af skilríkjum sambúðarmaka.

    Þú þarft að hafa einkasjúkratryggingu sem tryggir alla áhættu þar til þú hefur haft lögheimili á Íslandi í 6 mánuði. Sex mánaða lögheimilisskráning á Íslandi er forsenda þess að njóta sjúkratryggingar almannatrygginga.

    Það er á ábyrgð hvers og eins að þekkja skilmála sinnar tryggingar og tryggingafélags og að hún sé fullnægjandi og gild á Íslandi.

    Athugið að ef maki fékk lögheimilisskráningu á Íslandi á grundvelli þess að vera launþegi eða sjálfstætt starfandi þá þarf umsækjandi ekki að sýna fram á að hann sé sjúkratryggður eða hafi framfærslugetu.

     

    Valkvætt er að senda eftirfarandi gögn með umsókn en ávallt þarf að sýna frumrit við komu til landsins :

    • Fæðingarvottorð

    Öll gögn skulu vera á íslensku eða ensku. Ef gögn eru á öðru tungumáli, skal skila inn frumriti ásamt löggildri þýðingu frá löggildum skjalaþýðanda.

Sækja um lögheimilisskráningu hér!

Opna umsókn