Athugið!
Afgreiðslutími umsókna um lögheimilisskráningu á Íslandi er allt að 10 virkir dagar eftir að öllum fullnægjandi gögnum hefur verið skilað inn.
  • Þú getur verið búsettur á Íslandi á grundvelli þess að vera útsendur starfsmaður ef

    • Þú ert ríkisborgari EES/EFTA ríkis.
    • Þú vinnur fyrir fyrirtæki frá öðru EES/EFTA ríki sem sinnir verkefni á Íslandi.
  • Við vinnslu umsóknar þinnar er metið hverja umsókn fyrir sig við mat hvort þú sért í vinnu. Þetta þýðir meðal annars að:

    • Þú þarft að geta sýnt fram á ráðningarsamning við fyrirtæki frá öðru EES/EFTA ríki

    Þjóðskrá Íslands er heimilt að taka til skoðunar önnur gögn þegar lagt er mat á hvort skilyrði til skráningar sem útsendur starfsmaður sé uppfyllt. 

    Athugið. Misnotkun eða svik geta leitt til þess að dvalarréttur einstaklings verði afturkallaður. 

  • Sem ríkisborgari EES/EFTA átt þú rétt til að dvelja og vinna á Íslandi.

    Kennitalan er nauðsynleg á Íslandi til að t.d. opna bankareikning.

    Þú getur komið með fjölskyldu þína til Íslands og þurfa þau einnig að sækja um lögheimilisskráningu.

    EES/EFTA borgarar sem dvelja á Íslandi í 5 ár, geta átt rétt á ótímabundnum dvalarrétti ef þeir uppfylla skilyrði.

  • Ef þú hyggst dvelja hér á landi skemur en 3 mánuði þá uppfyllir þú ekki skilyrði til lögheimilisskráningar og getur sótt um kerfiskennitölu, sjá nánar hér.  Ef þú ert í atvinnuleit, hefur þú rétt til dvalar í allt að 6 mánuði áður en þú sækir um lögheimilisskráningu.

    Ef þú hyggst dvelja hér á landi lengur en 3 mánuði þarftu að sækja um lögheimilisskráningu á Íslandi. Þá hefur þú rétt til að dvelja á Íslandi svo lengi sem þú uppfyllir skilyrði til lögheimilisskráningar.

  • Ef þú fékkst lögheimilisskráningu á grundvelli þess að vera útsendur starfsmaður og starfi þínu sem útsendur starfsmaður er lokið, þá getur þú dvalið á Íslandi meðan þú uppfyllir skilyrði til lögheimilisskráningar, eins og t.d. sem :

    • Launþegi
    • Sjálfstætt starfandi
    • Eigin framfærslu
    • Námsmaður
    • Fjölskyldumeðlimur

    Ef þú ert að fara úr landi vegna þess að starfi þínu sem útsendur starfsmaður er lokið og uppfyllir þar af leiðandi ekki lengur skilyrði til lögheimilisskráningar, þarf að tilkynna flutning úr landi hér.

  • Einstaklingum er heimilt að fara erlendis í allt að 6 mánuði án þess að skrá lögheimili sitt úr landi. 

    Ekki þarf að skrá sig úr landi vegna dvalar erlendis lengur en 6 mánuði ef eitthvert eftirfarandi skilyrða á við:
    - Lengri fjarvera í eitt eða fleiri skipti vegna skyldubundinnar herþjónustu.
    - Fjarvera að hámarki 12 mánuði samfleytt af áríðandi ástæðum, svo sem vegna þungunar og barneignar, alvarlegra veikinda, náms eða starfsnáms eða starfa sem viðkomandi er sendur til í öðru EES/EFTA ríki eða þriðja landi.

    Ef þú ferð úr landi lengur en 6 mánuði og engin af ofangreindum ástæðum eiga við, þarftu að skrá þig úr landi hérNánari upplýsingar um flutninga úr landi er að finna hér.

    Ef þú skráðir þig úr landi, en ert kominn aftur til landsins, þarf að sækja aftur um lögheimilisskráningu innan 3 mánaða með umsókn A-271. 

    Hafi EES/EFTA ríkisborgari fengið ótímabundinn dvalarrétt á Íslandi, hefur dvöl erlendis ekki áhrif á dvalarrétt hans nema hún vari lengur en tvö ár.

    Vakin er athygli á að það er ekki heimilt að vera með skráð lögheimili í tveimur löndum á sama tíma, samkvæmt 1. mgr. 2. gr. laga nr. 80/2018 um lögheimili og aðsetur.

  • Þú getur sótt um lögheimilisskráningu með umsókn A-270 sem er að finna hægra megin á síðunni.

    Með umsókn þarf ávallt að leggja fram gilt vegabréf eða persónuskilríki ásamt nauðsynlegum gögnum sem sýna fram á að þú uppfyllir skilyrði til lögheimilisskráningar.

    Hvaða gögn skal senda inn með umsókn?

    • Ráðningarsamning við fyrirtæki frá öðru EES/EFTA landi

    Valkvætt er að senda eftirfarandi gögn með umsókn en ávallt þarf að sýna frumrit við komu til landsins :

    • Fæðingarvottorð
    • Hjúskaparstöðuvottorð. Þar sem skráning hjúskaparstöðu getur haft áhrif á réttindi einstaklinga, og eftir atvikum barna þeirra, ráðleggur stofnunin að því vottorði sé skilað inn (ef við á).

    Öll gögn skulu vera á íslensku eða ensku. Ef gögn eru á öðru tungumáli, skal skila inn frumriti ásamt löggildri þýðingu frá löggildum skjalaþýðanda.

Sækja um lögheimilisskráningu hér!

Opna umsókn