Dvöl skemur en 6 mánuðir

Ef þú ert norðurlandabúi og ert að fara að vinna launaða vinnu á Íslandi í skemur en sex mánuði getur þú leitað til Skattsins vegna umsóknar um kerfiskennitölu. Skattkort er útgefið í kjölfar útgáfu á kerfiskennitölu. Þú getur ekki sótt sjálf/ur um kerfiskennitölu en þarft sjálf/ur að óska eftir henni við Skattinn.

Kerfiskennitala veitir þér engin réttindi á Íslandi og staðfestir ekki rétt til dvalar. Þurfir þú á kerfiskennitölu að halda vegna annarra ástæðna en vegna vinnu, þarftu að leita til þess opinbera aðila sem gerir kröfu um íslenska kennitölu starfsemi sinnar vegna.

Stofna kerfiskennitölu

Sjá eyðublað RSK 3.30 Umsókn erlends ríkisborgara um kerfiskennitölu.

Vefur Skattsins